Grunnvatnsrannsóknir, vöktun og sjálfbær nýting vatnsauðlindarinnar verða meðal viðfangsefna ráðstefnunnar í Þorlákshöfn 22. mars 2027.
HYDROS Ölfus er einn af samstarfsaðilum ráðstefnunnar Dagur vatnsins 2027 – Auðlind til framtíðar, sem haldin verður á alþjóðadegi vatnsins. Sveitarfélagið Ölfus og Skaftárhreppur taka höndum saman um ráðstefnuna og Ölfus Cluster leiðir undirbúninginn og heldur utan um verkefnisstjórn, samhæfingu og framkvæmd.
Þekking á grunnvatni er grunnur að ábyrgri nýtingu
Vatnsauðlindin er undirstaða samfélaga og fjölbreyttrar atvinnustarfsemi. Rannsóknir og langtímavöktun auka skilning á ástandi hennar og skapa traustari grunn fyrir ákvarðanir um vernd og nýtingu.
Þátttaka HYDROS tengir ráðstefnuna við starf félagsins á sviði grunnvatnsrannsókna og vöktunar í Ölfusi. Ráðstefnan gefur tækifæri til að miðla þekkingu, ræða rannsóknarþarfir og efla samstarf um sjálfbæra nýtingu á auðlindinni til framtíðar.
Rannsóknir, nýsköpun og ný tengsl
Á ráðstefnunni verður fjallað um vatnsauðlindina frá ólíkum sjónarhornum, meðal annars grunnvatnsrannsóknir, vatnsgæði, vöktun, nýsköpun og ábyrga auðlindanýtingu. Þar kemur saman fólk úr rannsóknum, atvinnulífi og sveitarfélögum til að deila reynslu og ræða sameiginleg viðfangsefni.
Samhliða erindum verður rannsóknartorg þar sem nemendur, rannsakendur, stofnanir og fyrirtæki geta kynnt verkefni sín, miðlað þekkingu og myndað ný tengsl. Dagurinn verður því bæði vettvangur fyrir fræðslu og tækifæri til að finna samstarfsaðila og þróa nýjar hugmyndir.
Kallað eftir hugmyndum og þátttakendum
Undirbúningur ráðstefnunnar er hafinn og óskað er eftir hugmyndum að erindum, rannsóknarverkefnum og áhugaverðum fyrirlesurum. Verkefni á öllum stigum eru velkomin, einnig frá öðrum landshlutum.
Áhugasamir eru hvattir til að senda stutta lýsingu á hugmynd eða verkefni fyrir 15. desember 2026.
Nánari upplýsingar um ráðstefnuna og þátttöku veita Eva Lind Guðmundsdóttir og Páll Marvin Jónsson hjá Ölfus Cluster. Dagskrá og upplýsingar um skráningu verða kynntar síðar.