Umsögn Hydros og Sveitarfélagsins Ölfuss í samráðsgátt um drög að lögum um stjórn vatnamála

Hydros ehf. og Sveitarfélagið Ölfus hafa skilað sameiginlegri umsögn í samráðsgátt stjórnvalda um drög að lögum um stjórn vatnamála. Í umsögninni er lögð áhersla á vernd vatnsauðlindarinnar, sérstöðu lokaðs landeldis og mikilvægi þess að lagasetning styðji sjálfbæra atvinnuuppbyggingu í Ölfusi.