COWI-skýrsla markar tímamót í vöktun og vernd grunnvatns í Ölfusi

Hydros hefur birt COWI-skýrslu sem dregur saman niðurstöður borholuverkefnis á Hafnarsandi og leggur grunn að skipulegri og langtímabundinni vöktun grunnvatns á svæðinu.

Í skýrslunni er gerð grein fyrir framkvæmd borana, staðsetningu og dýpi hola, jarðfræðilegri uppbyggingu svæðisins og þeim frummælingum sem hafa verið gerðar í kjölfar framkvæmdanna. Mælingar á grunnvatnsstöðu, hitastigi og rafleiðni veita mikilvæga fyrstu innsýn í aðstæður í grunnvatninu og samspil ferskvatns og jarðsjávar á Hafnarsandi.

Hydros vinnur nú að næsta áfanga verkefnisins, sem felst í fjárfestingu í föstum mælibúnaði til að tryggja reglulegar, samræmdar og langtímabundnar mælingar. Slík vöktun er forsenda þess að fylgjast með þróun grunnvatnsauðlindarinnar yfir tíma, greina mögulegar breytingar og styðja við upplýsta ákvarðanatöku um nýtingu og vernd grunnvatns.

Vöktun grunnvatns varðar almannahagsmuni og snertir ekki einungis rekstur einstakra aðila, heldur öryggi og vernd vatnsbóla sveitarfélagsins til framtíðar. Með birtingu COWI-skýrslunnar er stigið mikilvægt skref í átt að gagnsærri, ábyrgri og sjálfbærri stjórnun grunnvatns í Ölfusi.

👉COWI skýrsla – Eftirlitsholur Hafnarsandi, jarðfræði og fyrstu mælingar