Hydros ehf. og Sveitarfélagið Ölfus hafa skilað sameiginlegri umsögn í samráðsgátt stjórnvalda vegna draga að frumvarpi til laga um stjórn vatnamála (stjórnarfrumvarp, 157. löggjafarþing 2025–2026). Umsögnin var lögð fram 2. febrúar 2026.
Frumvarpið hefur það að markmiði að styrkja vernd vatnsauðlindarinnar, koma í veg fyrir hnignun vatnshlota og tryggja sjálfbæra nýtingu yfirborðs- og grunnvatns. Í umsögninni er sérstaklega fjallað um áhrif lagasetningarinnar á landeldi í Ölfusi, sem hefur á undanförnum árum orðið mikilvægur þáttur í atvinnuuppbyggingu sveitarfélagsins.
Helstu áherslur umsagnarinnar eru meðal annars:
Stuðningur við heildstæðan lagaramma
Hydros og Sveitarfélagið Ölfus fagna setningu rammalaga um vatnamál og leggja áherslu á mikilvægi vatnsauðlindarinnar sem undirstöðu sjálfbærrar atvinnuuppbyggingar, þar á meðal landeldis.Sérstaða lokaðra/stýrðra landeldiskerfa
Áréttað er að landeldi í Ölfusi fer fram í lokuðum, tæknilega stýrðum kerfum með stöðugri vöktun vatnsnotkunar og vatnsgæða. Beiting laganna þarf að taka mið af þessari sérstöðu og vera í samræmi við sérlög, svo sem lög um lagareldi.Raunveruleg og mælanleg áhrif sem grundvöllur mats
Við mat á mögulegri hnignun vatnshlota er lögð áhersla á að byggt sé á raunverulegum, mælanlegum áhrifum en ekki einungis almennum forsendum eða flokkun starfsemi.Meðalhóf og fyrirsjáanleiki í leyfisveitingum og vöktun
Endurskoðun eða breyting leyfa skal vera stigskipt, byggð á gögnum og í samræmi við meðalhófsreglu, þar sem vægari úrræði eru nýtt áður en til íþyngjandi aðgerða kemur.Samræmi við skipulag og byggðasjónarmið
Við samræmingu vatnaáætlana og skipulagsáætlana sveitarfélaga er mikilvægt að taka tillit til þegar heimilaðrar starfsemi, fjárfestinga sem þegar hefur verið ráðist í og byggðahagsmuna.
Í niðurstöðu umsagnarinnar er lögð áhersla á að lög um stjórn vatnamála geti orðið öflugt tæki til verndar vatnsauðlindinni, að því gefnu að beiting þeirra sé hlutlæg, í samræmi við sérlög og tryggi jafnvægi milli umhverfisverndar, atvinnuuppbyggingar og fjárfestingaröryggis.
Umsögnina má nálgast í samráðsgátt stjórnvalda:
https://samradsgatt.island.is